Handbolti

Börge Lund tekur við liði í Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Norskir fjölmiðlar greina frá því að leikstjórnandinn Börge Lund muni snúa aftur til síns heima í lok tímabilsins og taka við liði Bodö HK.

Lund skrifaði undir þriggja ára samning og mun einnig spila með liðinu. Hann er 33 ára gamall og er í dag á mála hjá Füchse Berlin í Þýskalandi.

Lund fór frá Noregi árið 2002 og hefur síðan þá spilað með Álaborg í Danmörku og svo þýsku liðunum Nordhorn, Kiel, Rhein-Neckar Löwen og nú síðast Berlínarrefunum.

Hjá þremur síðastnefndu liðunum spilaði hann undir stjórn íslenskra þjálfara - þeirra Alfreðs Gíslasonar, Guðmundar Guðmundssonar og Dags Sigurðssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×