Körfubolti

47 íslensk stig í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Sundsvall hafði betur gegn Norrköping í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 93-85.

Sundsvall var þegar búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en þetta var lokaumferð deildarkeppninnar.

Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson skoruðu fjórtán stig hvor fyrir Sundsvall en Hlynur gaf átta stoðsendingar og tók sjö fráköst. Jakob tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Pavel Ermolinskij var stigahæstur í liði Norrköping með nítján stig en hann tók einnig flest fráköst (átta) og gaf flestar stoðsendingar (sex) í sínu liði.

Úrslitakeppnin hefst í næstu viku en Sundsvall mætir þá 08 Stockholm í fyrstu umferðinni en Norrköping mætir Borås.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×