Körfubolti

Jakob besti skotbakvörðurinn í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Jakob Sigurðarson var valinn í úrvalslið sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta og útnefndur skotbakvörður ársins af vefsíðunni eurobasket.com.

Það er karfan.is sem greinir frá þessu en Jakob var lykilmaður í liði Sundsvall Dragons sem varð nýlega deildarmeistari í Svíþjóð. Úrslitakeppnin hefst nú á föstudagskvöldið.

Hlynur Bæringsson, leikmaður Sundsvall, og Pavel Ermolinskij hjá Norrköping fengu báðir svokallaða heiðurstilnefningu fyrir góða frammistöðu á árinu. Hlynur var einnig valinn í varnarlið ársins.

Þjálfari ársins var valinn Peter Öqvist, þjálfari Sundsvall og íslenska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×