Körfubolti

Helena með 16 stig í öðrum sigri Englanna á 20 tímum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice áttu ekki í miklum vandræðum með því að tryggja sér sæti í undanúrslitunum úrslitakeppninnar í slóvakíska kvennakörfuboltanum eftir 130-59 sigur á Ostrava í hádeginu.

Helena skoraði 16 stig í seinni leiknum en tíu stig í þeim fyrri. Hún var þriðja stigahæst í sínu liði. Ungverjinn Tijana Krivacevic var stigahæst með 24 stig og Tékkinn Petra Kulichová var með 17 stig og 11 fráköst.

Good Angels Kosice vann fyrsta leikinn 118-51 en hann fór fram í gærkvöldi og því tók það Englana aðeins tuttugu tíma að slá út lið Ostrava.

Það þurfti að spila leikina svona þétt af því að Good Angels Kosice liðið var upptekið á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu sem lauk um síðustu helgi.

Good Angels Kosice mætir annaðhvort Piesanské Cajky eða SKBD Spixská Nová Ves í undanúrslitunum en þau mætast í oddaleik í kvöld. Fyrsti leikur undanúrslitanna er á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×