Körfubolti

Hörður Axel stigahæstur í sjötta sinn í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 16 stig fyrir Mitteldeutscher BC í gær þegar liðið varð að sætta sig við 71-77 tap á heimavelli á móti Telekom Baskets Bonn.

Þetta er í sjötta sinn á tímabilinu sem Hörður Axel er stigahæsti leikmaður síns liðs en hann skoraði stigin sín sextán á 34 mínútum og var einnig með 5 fráköst og 4 stoðsendingar.

Hörður Axel hitti úr 6 af 14 skotum sínum í leiknum þar af 4 af 10 fyrir utan þriggja stiga línuna. Mitteldeutscher tapaði þeim sex mínútum sem hann sat á bekknum með sex stigum.

Slakur fyrsti leikhluti varð Mitteldeutscher að falli en Bonn-liðið vann hann 19-8 og tók frumkvæðið í leiknum sem gestunum tókst að halda út leiktímann.

Hörður Axel skoraði tvo af þristum sínum á síðustu mínútu leiksins þegar Mitteldeutscher gerði lokatilraun við að vinna upp muninn. Hann minnkaði muninn í bæði fjögur (63-67) og fimm stig (66-71).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×