Handbolti

Róbert á skýrslu á morgun | Zorman ekki með

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Mynd/Vilhelm
Róbert Gunnarsson virðist vera leikfær fyrir leik Íslands og Slóveníu í undankeppni EM 2014 á morgun. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll og hefst klukkan 16.00.

Róbert hefur verið að glíma við meiðsli síðan á HM í janúar og missti af leiknum gegn Slóvenum ytra á miðvikudagskvöldið. Hann kemur inn í hópinn nú fyrir Atla Ævar Ingólfsson.

Kári Kristján Kristjánsson er einnig í hópnum en hann sneri sig á ökkla í leiknum ytra. Hann hefur staðið í ströngu þar sem að félag hans, Wetzlar í Þýskalandi, sagði upp samningi hans fyrir að spila með landsliðinu í Slóveníu.

Uros Zorman, leikstjórnandinn sterki í liði Slóvena, er ekki með sínum mönnum og er það áfall fyrir gestina. Zorman á við meiðsli að stríða.


Tengdar fréttir

Fyrirliðinn með fullt hús

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti frábæran leik í sigrinum í Slóveníu á miðvikudagskvöldið og kórónaði síðan flotta frammistöðu með því að skora sigurmarkið á lokamínútunni.

Magnaður sigur í Maribor

Íslenska landsliðið í handknattleik vann magnaðan sigur, 28-29, á Slóvenum í Maribor í kvöld. Íslenska liðið átti magnaða endurkomu í síðari hálfleik og vann frækinn sigur.

Rekinn frá Wetzlar

Þýska úrvalsdeildarfélagið Wetzlar rak landsliðsmanninn Kára Kristján Kristjánsson frá félaginu í gær. Félagið segir Kára hafa gerst sekan um brot á samningi við félagið og þess vegna hafi félagið ákveðið að segja upp samningnum.

Kári Kristján spilar í Maribor

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór í aðgerð vegna góðkynja æxlis í baki fyrir rúmum mánuði síðan. Hann er búinn að jafna sig og mun spila leikinn mikilvæga gegn Slóvenum í undankeppni EM í dag.

Fyrirliði Wetzlar orðlaus

Michael Müller, fyrirliði Wetzlar, lýsir mikilli furðu yfir þeirri ákvörðun Kára Kristjáns Kristjánssonar að spila með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu í fyrradag.

Verður Kári rekinn frá Wetzlar?

Þýska dagblaðið Giessener Allgemeine greinir frá því í dag að forráðamenn Wetzlar eru afar óánægðir með að Kári Kristján Kristjánsson hafi spilað með íslenska landsliðinu í gær.

Óvissa með Róbert

Ísland mætir Slóveníu klukkan 16.00 á morgun í Laugardalshöll í mikilvægum leik. Með sigri tryggir Ísland sér sæti á EM í Danmörku á næsta ári en Slóvenar mega helst ekki við því að tapa ætli þeir sér að komast upp úr riðlinum.

Aron: Óþolandi vinnubrögð hjá Wetzlar

Vísir fylgdist með blaðamannafundi HSÍ í beinni textalýsingu. Tilefnið var leikur Íslands og Slóveníu í Laugardalshöllinni á sunnudag.

Datt næstum því úr sófanum þegar ég sá Kára spila

Wetzlar hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við íslenska landsliðslínumanninn Kára Kristjánsson eftir að Kári lék með íslenska landsliðinu í Slóveníu í gær. Félagið vissi ekki betur en að Kári væri í veikindaleyfi heima á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu HSG Wetzlar.

Kári: Ég fékk skýrt já

Kári Kristján Kristjánsson segist hafa fengið skýr svör frá tveimur læknum hjá Wetzlar um að hann mætti spila með íslenska landsliðinu í Slóveníu.

HSÍ vissi ekki að Kári væri skráður á sjúkralista

Handknattleikssamband Íslands og Kári Kristján Kristjánsson sendu nú síðdegis frá sér yfirlýsingu vegna máls Kára. Hann var rekinn frá félagi sínu, Wetzlar, fyrir að hafa spilað landsleikinn gegn Slóveníu síðastliðinn miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×