Handbolti

Tímabilið búið hjá Wright-Phillips

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Shaun-Wright Phillips spilar ekki meira með QPR á tímabilinu þar sem hann gekkst nýverið undir aðgerð á ökkla.

„Þetta var nauðsynlegt," sagði Harry Redknapp, stjóri QPR. „Við reyndum að halda honum gangandi en hann hefur verið að spila þjáður í nokkurn tíma. Hann gaf allt sem hann átti en svo bara gat hann ekki meira."

Wright-Phillips spilaði síðast þann 9. mars síðastliðinn en þetta eru slæm tíðindi fyrir QPR, enda liðið í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni og sjö stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×