Körfubolti

Hörður Axel og félagar í Mitteldeutscher töpuðu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörður Axel í leik með Keflavík.
Hörður Axel í leik með Keflavík. Mynd / Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher  töpuðu fyrir Phoenix Hagen, 99-88, í lokaumferð þýsku  úrvalsdeildarinnar en það var ljóst fyrir leikinn að liðið myndi halda sæti sínu í deildinni.

Mitteldeutscher  hafnaði því í 16. sæti deildarinnar en alls eru 18 lið í efstu deild.

Hörður Axel Vilhjálmsson gerði sjö stig í leiknum og átti fjórar stoðsendingar en hann lék um hálfan leikinn í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×