Körfubolti

Indiana kláraði New York

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lance Stephenson fangar sigrinum í nótt.
Lance Stephenson fangar sigrinum í nótt. Nordicphotos/Getty

Indiana Pacers tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Austurdeildar NBA með 106-99 sigri á New York Knicks í sjötta leik liðanna.

Lance Stephenson átti stórleik hjá heimamönnum sem unnu sinn annan leik í röð og tryggðu sér 4-2 sigur í einvíginu. Stephenson skoraði 25 stig og tók 10 fráköst en Paul George, Roy Hibbert og David West komust einnig afar vel frá sínu.

Indiana hafði frumkvæðið framan af leik en New York tókst að jafna metin í þriðja leikhlut. Heimamenn, vel studdir á heimavelli, lönduðu að lokum sjö stiga sigri.

Andstæðingar Indiana í úrslitum deildarinnar verða meistarar Miami Heat. Indiana komst síðast í úrslit Austurdeildar árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×