Handbolti

Þórir spilar um titilinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. Mynd/Heimasíða Kielce
Kielce lenti ekki í vandræðum með andstæðing sinn í undanúrslitum úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Kielce vann Azaty Pulawy, 25-23, og þar með 3-0 í rimmunni. Liðið mætir Wisla Plock í úrslitaeinvíginu en þessi tvö lið hafa borið höfuð og herðar yfir önnur í deildinni undanfarin ár.

Þórir skoraði tvö mörk í leiknum en hann deilir stöðu hægri hornamanns með Ivan Cupic sem skoraði tólf mörk.

Þórir varð bikar- og deildarmeistari með liði sínu og getur nú bætt stóra titlinum í safnið. Liðið er þar að auki komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×