Fótbolti

Fékk rautt fyrir að sparka í sjúkraflutningamann

Stefán Árni Pálsson skrifar

Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik Argentínu og Ekvador í gærkvöldi en Javier Mascherano, leikmaður Barcelona og argentínska landsliðsins, sparkaði í sjúkraflutningamann þegar hann keyrði leikmanninn af velli.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Sergio Aguero gerði eina mark Argentínu í leiknum og Segundo Castillo skoraði mark Ekvador.

Argentína er í efsta sæti undankeppni Suður-Ameríku í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Brasilíu næsta sumar.

Hér að ofan má aftur á móti sjá myndband af atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×