Körfubolti

Hörður Axel til Spánar

Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik.
Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson er búinn að finna sér nýtt félag. Hann samdi við spænska úrvalsdeildarliðið CB Valladolid.

Hörður Axel verður þar með þriðji Íslendingurinn sem spilar í deildinni en þar eru fyrir Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson.

Hörður kemur til félagsins frá þýska liðinu Mitteldeutscher þar sem hann skoraði níu stig að meðaltali í leik síðasta vetur.

Hann æfði með öðru spænsku félagi, Bilbao Basket, á dögunum en fékk ekki samning þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×