Körfubolti

Króatar sendu Grikki heim eftir tvíframlengdan leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bojan Bogdanović
Bojan Bogdanović mynd / afp
Króatía vann ótrúlegan sigur, 92-88, á Grikkjum á Evrópumótinu í körfubolta sem fram fer í Slóveníu en tvíframlengja þurfti leikinn.

Um var að ræða leik í lokaumferð milliriðils F en tap Grikkja gerir það að verkum að liðið kemst ekki áfram í 8-liða úrslitin.

Bojan Bogdanović gerði 22 stig fyrir Króata og Gourousis gerði 21 stig fyrir Grikkland í leiknum.

Leikur Ítala og Spánverja byrjar  klukkan 15:45 og klukkan 19:00 mæta síðan heimamenn Svíum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×