Körfubolti

Hörður Axel og félagar í Valladolid töpuðu fyrir Estudiantes

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í CB Valladolid töpuðu nokkuð illa fyrir Estudiantes, 80-66, á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik  í dag.

Jafnræði var á með liðunum stóran hluta af leiknum en í lokaleikhlutanum voru það heimamenn sem voru sterkari og unnu að lokum 14 stiga sigur.

Hörður Axel gerði sex stig í leiknum og gaf þrjár stoðsendingar en liðið hefur ekki náð í stig í fyrstu tveimur umferðunum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×