Körfubolti

Haukur og félagar sóttu tvö stig til Andorra

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Mynd/Anton
Haukur Helgi Pálsson og félagar í CB Breogan unnu í kvöld fjögurra stiga sigur á BC Andorra í spænsku b-deildinni í körfubolta en leikurinn fór fram í Andorra.

Haukur Helgi Pálsson skoraði átta stig og tók 5 fráköst á 25 mínútum en hann var einnig með eina stoðsendingu og eitt varið skot. Haukur hitti ekki vel út á velli (1 af 6 skotum) en nýtt öll sex vítin sín.

CB Breogan hefur unnið þrjá af fjórum fyrstu leikjum sínum á tímabilinu og er í hópi fjögurra efstu liðanna. Eitt af þeim er einmitt lið BC Andorra sem var taplaust fyrir leikinn í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×