Handbolti

Anton markahæstur í jafntefli Nordsjælland

Sigmar Sigfússon skrifar
MYND/INSTAGRAM
MYND/INSTAGRAM
Anton Rúnarsson skoraði 9 mörk fyrir Nordsjælland þegar liðið gerði jafntefli við Ribe-Esbjerg, 25-25 í miklum háspennu leik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Lokamínúturnar voru æsispennandi. Nordsjælland var tveimur mörkum yfir þegar tvær mínútur voru eftir og fékk vítakast. Anton fór á punktinn en brenndi af. Ribe-Esbjerg fékk því lokasókn og jöfnuðu leikinn þegar um tíu sekúndur voru eftir.

Tíminn var of naumur og Nordsjælland náði ekki að skora mark í lokin. Grátlegt fyrir Anton og félaga að missa leikinn í jafntefli.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði þrjú mörk af línunni fyrir Nordsjælland í leiknum.

Nordsjælland er í 11. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með 5 stig eftir 8 leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×