Körfubolti

Jón Arnór og félagar töpuðu fyrir þýsku liði í Eurocup

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu.
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu. mynd/ daníel.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu fyrir Telekom Baskets Bonn, 108-104, í Eurocup-keppninni í kvöld.

Jón Arnór átti ágætan leik og skoraði níu stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Íslendingurinn lék í 26 mínútur í leiknum.

Ryan Brooks skoraði 17 stig fyrir þýska liðið Telekom Baskets Bonn og var atkvæðamestur í liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×