Körfubolti

Fínn leikur Helenu dugði ekki til sigurs

Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir og félagar í ungverska liðinu Miskolc fengu mikinn skell í Eurocup í kvöld.

Liðið tapaði 90-71 og sá aldrei til sólar í leiknum.

Helena snéri aftur á völlinn í kvöld eftir meiðsli. Hún stóð svo sannarlega fyrir sínu.

Helena skoraði 13 stig á 16 mínútum og var næststigahæst í liði Moskulc. Hún tók þess utan tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×