Körfubolti

KR-ingar komnir með nýjan Kana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ebone Henry fyrir miðri fremri röð.
Ebone Henry fyrir miðri fremri röð. Mynd/Ebone Henry
Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk úr vesturátt. Ebone Henry, 22 ára gamall bandarískur leikmaður, mun leika með þeim röndóttu í vetur.

Henry hefur undanfarin fjögur ár spilað með Albany háskólanum í New York fylki. Þar setti hún stigamet og stal næst flestum boltum í sögu kvennaliðs skólans. Þá var hún í fjórða sæti yfir flest fráköst. Þrjú seinustu árin var hún valin í úrvalslið deildarinnar.

KR fær Valskonur í heimsókn annað kvöld og mætir svo Hamar í Hveragerði annan miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×