Körfubolti

Stórt tap hjá Drekunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Daníel
Sundsvall Dragons tapaði sínum öðrum leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld þegar liðið fékk 27 stiga skell á útivelli á móti Södertälje Kings, 75-102.

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall með 17 stig. Hlynur Bæringsson var með 14 stig og 6 fráköst, Ægir Þór Steinarsson skoraði 6 stig og gaf 3 stoðsendingar.

Sundsvall Dragons saknar mikið Bandaríkjamannsins Alex Wesby sem félagið þurfti að láta fara vegna peningavandræða.

Södertälje Kings var ekki í miklum vandræðum í þessum leik, vann fyrsta leikhlutann 37-29 og var komið 22 stigum yfir í hálfleik, 64-42.

Sundsvall Dragons er í 4. sæti með jafnmörg stig og liðin í fimmta og sjötta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×