Körfubolti

Helena fór illa með kettina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Daníel
Körfuknattleiksskonan Helena Sverrisdóttir skoraði átján stig fyrir Aluinvent Miksolc í 106-60 sigri á Lotto Young Cats í Evrópubikarnum í kvöld.

Heimakonur í Miskolc tóku frumkvæðið strax í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum 49-30. Þær bættu við sig í seinni hálfleik og unnu 46 stiga sigur.

Helena lék 22 mínútur, skoraði úr fjórum af sjö skotum sínum innan þriggja stiga línunnar og tveimur af þremur utan hennar. Hún tók þrjú fráköst og átti tvær stoðsendingar.

Helena og félagar hafa unnið einn leik og tapað einum í E-riðli keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×