Körfubolti

Leikur Jóns Arnórs og félaga hrundi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. MYND/RAMÓN CORTÉSWWWCAISTAS.NET
Útlitið var gott hjá Jóni Arnóri Stefánssyni og félögum í CAI Zaragoza að loknum þriðja leikhluta gegn Gravelines Dunkerque í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld.

Spánverjarnir leiddu 62-55 fyrir lokafjórðunginn en þá virðist allt hafa farið úrskeiðis. Heimamenn skoruðu 30 stig gegn fimm stigum gestanna í lokaleikhlutanum og unnu 18 stig sigur, 85-67.

Jón Arnór spilaði 26 mínútur hjá gestunum. Hann skoraði fimm stig þar af þrjú af vítalínunni. Bæði þriggja stiga skot hans geiguðu. Þá tók hann tvö fráköst og átti fjórar stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×