Fótbolti

Halmstad heldur sæti sínu í Allsvenskan

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðjón og Kristinn
Guðjón og Kristinn Mynd/Facebook
Íslendingaliðið Halmstad tryggði sæti sitt í Allsvenskan með 2-1 sigri á GIF Sundsvall í umspilsleik upp á sæti í efstu deild á næsta ári.

Kristinn Steindórsson og Guðjón Baldvinsson voru í byrjunarliði Halmstad en í liði Sundsvall var Jón Guðni Fjóluson í byrjunarliðinu en Rúnar Már Sigurjónsson á bekknum.

Sundsvall náði forskotinu í upphafi fyrri hálfleiks en tvö mörk frá Mikael Boman sneru stöðunni Halmstad í hag og tryggði að lokum sætið í efstu deild.

Liðin mættust í sama leik fyrir ári síðan og þá sigraði Halmstad einnig og tryggði sér með sigrinum sæti í Allsvenskan sem þeir halda á næsta ári eftir leik dagsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×