Körfubolti

Helena með 19 stig í Evrópuleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Daníel
Helena Sverrisdóttir var stigahæst í sínu liði þegar ungverska liðið Aluinvent Miskolc tapaði eftir spennuleik á móti franska liðinu Basket Landes í riðlakeppni Eurocup-keppninnar í dag.

Helena skoraði 19 stig á 31 mínútu í leiknum en hún hitti úr 6 af 13 skotum þar af 2 af 4 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Helena var einnig með 2 fráköst og 1 stolinn bolta. Lettinn Liene Jansone var næststigahæst með 11 stig en bandaríski miðherjinn Rebecca Tobin klikkaði hinsvegar á öllum fimm skotum sínum í leiknum.

Miskolc var 17-12 yfir eftir fyrsta leikhlutann en Frakkarnir snéru leiknum sér í vil í öðrum og þriðja leikhluta. Miskolc var yfir þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum en þær frönsku voru sterkari í lokin.

Aluinvent Miskolc hefur unnið 2 af 4 leikjum sínum og er í 2. sæti í riðlinum en Basket Landes er með fullt hús á toppnum. Franska liðið vann fyrri leikinn við Miskolc með 19 stiga mun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×