Íslenski boltinn

Kaupverðið á Viðari Erni sagt vera nítján milljónir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Viðar Örn Kjartansson átti frábæran leik í sigri Fylkis á Val í sumar.
Viðar Örn Kjartansson átti frábæran leik í sigri Fylkis á Val í sumar. Mynd/Arnþór
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson er við það að ganga í raðir norska félagsins Vålerenga. Verdens Gang greinir frá því.

Samkvæmt heimildum blaðsins mun kaupverðið vera í kringum eina milljón norskra króna eða jafnvirði um 19 milljóna íslenskra króna. Norska félagið á að hafa upphaflega gert Fylki helmingi lægra tilboð sem var hafnað.

Viðar Erni, sem var markahæsti leikmaður Pepsi-deildar síðastliðið sumar ásamt Atla Viðari Björnssyni og Gary Martin, er ætlað að fylla í skarð Togeirs Börven sem VG segir á leiðinni til hollenska liðsins Twente.

Viðar Örn, sem er 23 ára, á að baki leiki með 17 og 19 ára landsliði Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×