Fótbolti

„Ekki það heimsk að ég átti mig ekki á muninum á karla- og kvennafótbolta“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Seger (fyrir miðju) ásamt félögum sínum í landsliðinu.
Seger (fyrir miðju) ásamt félögum sínum í landsliðinu. Mynd/Instagram
„Ég bið þig um að bera virðingu fyrir kvennaknattspyrnu en umfram allt hugsa til þess að það eru margar fimm ára stelpur með sama draum og ég átti á sínum tíma.“

Þannig hljóðar niðurlag í skilaboðum sem Caroline Seger sendir Zlatan Ibrahimovic á Instagram síðu sinni í dag. Skilaboðin í heild sinni má sjá hér að neðan á frummálinu.

Seger, sem er 28 ára og hefur spilað 112 landsleiki fyrir Svía, er líkt og svo margir ósátt við ummælin sem skærasta stjarnan Svía lét falla í viðtali við Expressen á jóladag. Þar sagðist Zlatan vera þreyttur á væli í kjölfar þess að landsleikjahæsti leikmaður karlalandsliðsins fékk bíl að gjöf ólíkt því sem tilfellið var þegar landsleikjametið var bætt í kvennaliðinu.

Sagðist Zlatan geta áritað reiðhjól fyrir konurnar og þær ættu að vera sáttar við það. Hafa fjölmargir gagnrýnt Svíann fyrir skoðun hans.

„Þegar ég var fimm ára þá dreymdi mig um að spila með landsliðinu. Nú á 28. aldursári hef ég spilað fyrir þjóð mína í níu ár. Á ferli mínum hef ég orðið vitni að því að kvennafótboltinn hefur blómstrað,“ segir Seger.

Miðjumaðurinn, sem leikur með Tyresö í heimalandinu, segist aldrei á ferli sínum hafa orðið eins mikið niðri fyrir og þegar hún las ummæli Zlatan. Frægasta íþróttamanns Svía í lengri tíma og fyrirmynd unga fólksins í Svíþjóð og víðar.

„Ég hef aldrei beðið um að vera borin saman við karlmenn og ég er ekki það heimsk að ég átti mig ekki á muninum á karla- og kvennafótbolta. Hins vegar á að bera virðingu fyrir kvennafótbolta og fólkinu sem setur alla sína orku í að iðka íþróttina sem það elskar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×