Körfubolti

Hlyn vantaði bara tvö stig í þrennuna - frábær sigur Drekanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann glæsilegan 15 stiga sigur á  Norrköping Dolphins, 80-65, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sundsvall Dragons var undir eftir fyrsta leikhlutann (21-22) en spilaði frábæra vörn út leikinn og vann síðustu þrjá leikhlutana sannfærandi.

Íslensku landsliðsmennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru mennirnir á bak við sigur Drekanna í kvöld.

Jakob var stigahæstur hjá Sundsvall með 23 stig en Hlynur var bæði frákastahæstur (13) og stoðsendingahæstur (10). Hlyn vantaði bara tvö stig í þrennuna en hann hitti illa og skoraði aðeins átta stig.

Sundsvall Dragons var fyrir leikinn þremur sætum neðar í töflunni en Norrköping Dolphins en þetta var sjötti heimasigur Drekanna í átta leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×