Körfubolti

Jón Arnór keppir um Konungsbikarinn í fyrsta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza hefja í kvöld leik í keppni um spænska Konungsbikarinn í körfubolta en þangað komast bara átta efstu lið spænsku deildarinnar.

Jón Arnór er á sínu fimmta tímabili á Spáni en þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í þessari sérstöku bikarkeppni sem er kláruð á fjórum dögum.

CAI Zaragoza mætir liði Caja Laboral í 8 liða úrslitunum í kvöld. Caja er í 2. sæti deildarinnar en CAI er í 7. sæti. Sigurvegari úr þessum leik mætir sigurvegaranum úr leik Real Madrid (1. sæti) og Barcelona (4. sæti) sem fer einnig fram í kvöld.

Undanúrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn og úrslitaleikurinn er síðan spilaður daginn eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×