Körfubolti

Fyrsta flug Geitungsins í atvinnumennskunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson
Ægir Þór Steinarsson Mynd/Vilhelm
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson spila í dag sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar Sundsvall Dragons sækir heim Södertälje Kings í sænsku úrvalsdeildinni i körfubolta.

Að þessu sinni hafa þeir félagar „Geitunginn“, Ægi Þór Steinarsson, með sér í liði en Ægir spilar í dag sinn fyrsta alvöruleik sem atvinnumaður.

Ægir Þór spilaði í bandarískum háskóla í fyrravetur en er uppalinn í Fjölni. Þjálfari Drekanna er landsliðsþjálfarinn Peter Öqvist.

Leikur Södertälje Kings og Sundsvall Dragons hefst klukkan 13.04 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×