Körfubolti

Enn eitt tapið hjá Valladolid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hörður Axel í leik með landsliðinu.
Hörður Axel í leik með landsliðinu.
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði fjögur stig þegar að lið hans, CB Valladolid, mátti þola 29 stiga tap fyrir Gran Canaria í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Lokatölur voru 89-60 en Hörður Axel spilaði í fimmtán mínútur í kvöld. Hann setti niður eina þriggja stiga körfu í þremur tilraunum.

Valladolid er í neðsta sæti deildarinnar með tvo sigra í sautján leikjum. Gran Canaria er í 3.-5. sæti með ellefu sigra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×