Körfubolti

Stórsigur Jóns Arnórs og félaga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson spilaði í rúmar tíu mínútur þegar að lið hans, CAI Zaragoza, vann sannfærandi sigur á Lietuvos Rytas Vilnius, 94-60, í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld.

Jón Arnór er að koma til baka eftir að hafa verið frá vegna meiðsla en í kvöld skoraði hann átta stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

CAI Zaragoza leiddi frá upphafi en sigurinn var kærkominn eftir að liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í P-riðli keppninnar. Besiktas, sem er taplaust, og Cedevita Zagreb eigast við á morgun í sama riðli.


Tengdar fréttir

Jón Arnór kominn aftur til baka - spilaði með CAI í kvöld

Jón Arnór Stefánsson er kominn af stað á ný en hann lék með CAI Zaragoza í Evrópuleik í Tyrklandi í kvöld. Endurkoma Jóns Arnór dugði þó ekki spænska liðinu til sigurs en það er mikið fagnaðarefni að sjá okkar mann aftur á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×