Barkley gerði grín að grátandi þjálfara Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. mars 2014 23:30 Það er alltaf stutt í brosið hjá Barkley vísir/afp
Körfuboltagoðsögnin Charles Barkley er þekktur fyrir að halda ekki aftur af sér og láta allt gossa enda álíka orðheppinn og hann var harður inni á vellinum á sínum tíma. Nú varð Saul Phillips fyrir barðinu á Barkley. Saul Phillips er þjálfari North Dakota State háskólans í bandaríska háskólakörfuboltanum. Fyrst komst Phillips í fréttirnar þegar hann fagnaði sigri skóla síns á Oklahoma á dögunum ákaflega innilega. Í gær féll North Dakota State úr úrslitakeppninni þegar liðið tapaði fyrir San Diego State og aftur komst Phillips í fréttirnar en núna vegna þess að hann grét á blaðamannafundi. Barkley vildi ekki gera lítið úr því að Phillips grét í sjónvarpi og sagðist skilja manninn vel. „Þjálfari, ég hef verið í þessari stöðu þegar þú tapar. Það er erfitt. Ég hef notið blessunar í lífinu. Körfubolti hefur gefið mér allt í lífinu,“ sagði Barkley. „Ég geri ekki grín að þessu vegna þess að það er ömurlegt að tapa. Þið áttuð frábært ár. Ég vil ekki gera grín að þér,“ sagði Barkley alvörugefinn en svo gat hann ekki meir og hans sanna eðli braust fram. „Ég held ekki að hann hafi grátið af því að þeir töpuðu, hann grét af því að hann þarf að fara aftur til North Dakota,“ sagði Barkley eins og sjá má hér að neðan.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira