Handbolti

Kolding úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Kristjánsson og félagar féllu úr leik fyrir Metalurg.
Aron Kristjánsson og félagar féllu úr leik fyrir Metalurg. Vísir/Getty
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í KIF Kolding töpuðu 30-26 fyrir makedónska liðinu Metalurg í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Kolding tapaði fyrri leiknum í Makedóníu 23-17 og er því fallið úr leik.

Albert Rocas og Bo Spellerberg skoruðu fimm hvor fyrir Kolding, en líkt og í fyrri leiknum reyndist Slóveninn Renato Vugrinec Dönunum erfiður ljár í þúfu. Hann skoraði tíu mörk fyrir Metalurg, en Rússinn Pavel Atman kom næstur með níu mörk.

Þetta var þriðja tap Kolding í röð í öllum keppnum, eftir að liðið vann ellefu fyrstu leikina undir stjórn Arons.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×