Handbolti

Lærisveinar Arons sóttu sigur til Holstebro

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Kristjánsson og hans menn í KIF Kolding unnu útisigur á Team Tvis Holstebro í dag.
Aron Kristjánsson og hans menn í KIF Kolding unnu útisigur á Team Tvis Holstebro í dag. Vísir/Getty
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í KIF Kolding unnu nauman sigur, 23-25, á Team Tvis Holstebro í fyrri leik liðanna í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Staðan í hálfleik var 13-12, heimamönnum í Holstebro í vil. Holstebro var yfir framan af seinni hálfleik og þegar 14 mínútur voru eftir voru heimamenn yfir, 21-19. Kolding átti hins vegar góðan endasprett og tryggði sér sigurinn með því að skora sex af síðustu átta mörkum leiksins.

Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Kolding eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×