Handbolti

Róbert og Ásgeir Örn með sex mörk saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Vísir/Getty
Landsliðsmennirnir Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hjálpuðu til við að landa sextán marka stórsigri á Aix í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Róbert skoraði fjögur mörk og Ásgeir Örn var með tvö mörk þegar lið þeirra Paris Saint Germain vann 40-24 útisigur á Aix. Báðir klikkuðu þeir á tveimur skotum í leiknum.

Danska stórskyttan Mikkel Hansen var markahæstur hjá Parísarliðinu með sjö mörk úr ellefu skotum, unverski landsliðsfyrirliðinn Gabor Csaszar skoraði sex mörk og franski landsliðshornamaðurinn Luc Abolo var með fimm mörk.

Þetta var þriðji deildarsigur Parísar-liðsins í röð en liðið er í öðru sæti frönsku deildarinnar þremur stigum á eftir toppliði Dunkerque.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×