Fótbolti

Viðar kom Vålerenga áfram í norska bikarnum - 11 mörk í 9 leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. Vísir/Vilhelm
Viðar Örn Kjartansson er áfram á skotskónum í norska fótboltanum en hann skoraði sigurmark Vålerenga í 2. umferð norsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.

Viðar Örn Kjartansson byrjaði á bekknum þegar Vålerenga vann 3-2 útisigur á Elverum. Viðar kom inn á sem varamaður á 66. mínútu en þá hafði Daniel Fredheim Holm komið Vålerenga í 1-0 á 53. mínútu.

Vålerenga komst í 2-0 en liðsmenn Elverum náðu að jafna með tveimur mörkum á tveimur mínútum undir lok leiksins.

Viðar reddaði hinsvegar málunum fyrir Vålerenga þegar hann skoraði sigurmarkið á annarri mínútu í uppbótartíma. Vålerenga er því komið áfram í 3. umferð bikarsins.

Viðar Örn Kjartansson hefur þar með skorað 11 mörk í fyrstu níu leikjum sínum með Vålerenga þar af fjögur mörk í tveimur bikarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×