Handbolti

Risasigur hjá Kiel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði sex mörk þegar Kiel rúllaði yfir Lemgo.
Guðjón Valur skoraði sex mörk þegar Kiel rúllaði yfir Lemgo. Vísir/Getty
Kiel valtaði yfir Lemgo á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 46-24, Kiel í vil.

Serbinn Marko Vujin var markahæstur í liði Kiel með 11 mörk, en Nicklas Ekberg kom næstur með níu. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Kiel og Aron Pálmarsson fimm.

Hendrik Pekeler skoraði fimm mörk fyrir Lemgo sem situr í 9. sæti deildarinnar.

Kiel trónir á toppnum með 53 stig, tveimur stigum meira en Rhein-Neckar Löwen sem leikur gegn Hamburg seinna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×