Fótbolti

Jón Daði fékk ekki sigur í afmælisgjöf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Daníel skoraði fyrir Viking í dag. Það dugði þó ekki til sigurs.
Björn Daníel skoraði fyrir Viking í dag. Það dugði þó ekki til sigurs. Vísir/Valli
Björn Daníel Sverrisson skoraði fyrsta mark leiksins þegar Viking tapaði 3-2 fyrir Bodø/Glimt á heimavelli.

Björn Daníel kom Viking yfir á 18. mínútu með sínu öðru marki á tímabilinu. Forysta Viking entist þó ekki lengi, en Senegalinn Mouhamadou Ndiaye jafnaði leikinn á 26. mínútu.

Vidar Nisja kom Viking yfir á nýjan leik á lokamínútu fyrri hálfleiks, en varamaðurinn Anders Karlsen tryggði Bodø/Glimt sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Auk Björns Daníels voru þeir Sverrir Ingi Ingason, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Indriði Sigurðsson og afmælisbarnið, Jón DaðiBöðvarsson, í byrjunarliði Viking í dag. Liðið situr í 8. sæti með 17 stig.

Odd Grenland komst upp í þriðja sæti deildarinnar með 1-0 sigri á Start á útivelli. Eina mark leiksins kom á 66. mínútu þegar Nígeríumaðurinn Solomon Owello setti boltann í eigið net, en skömmu áður hafði Start misst mann af velli með rautt spjald.

Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn fyrir Start en Matthías Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður á 56. mínútu.

Guðmundur Þórarinsson var á sínum stað í byrjunarliði Sarpsborg 08 sem gerði markalaust jafntefli við Aalesund á útivelli. Þórarinn Ingi Vladimarsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Sarpsborg sem situr í 11. sæti með 13 stig.

Hannes Þór Halldórsson stóð allan tímann í marki Sandnes Ulf sem tapaði 1-0 fyrir Sogndal á útivelli. Tim André Nilsen skoraði sigurmarkið á lokamínútu leiksins.

Hjörtur Logi Valgarðsson lék allan leikinn fyrir Sogndal sem situr í 10. sæti deildarinnar með 14 stig. Sandnes vermir hins vegar botnsætið með sjö stig, en liðið hefur aðeins einn af 11 leikjum sínum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×