Handbolti

Dagur missir fjóra menn | Romero tekur eitt ár í viðbót

Sven-Sören spilar með Rúnari Kárasyni næsta vetur.
Sven-Sören spilar með Rúnari Kárasyni næsta vetur. vísir/getty
Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, verður nokkuð breytt á næstu leiktíð. Fjórir leikmenn eru á förum og búið er að sannfæra reynslubolta í liðinu um að taka eitt ár í viðbót.

Max Kroll, Oliver Milde, Markus Richwien og landsliðsmaðurinn Sven-Sören Christophersen eru allir á förum. Sven-Sören er á leið til Rúnars Kára og félaga í Hannover-Burgdorf.

Spánverjinn Iker Romero var búinn að ákveða að henda skónum upp í hillu í sumar en hefur nú verið sannfærður um að taka eitt ár í viðbót með liðinu.

"Mér tókst að sannfæra hann um að taka eitt ár í viðbót sem er gríðarlega mikilvægt. Það kostaði mig reyndar dýra vínflösku. Reynsla hans á eftir að reynast okkar ungu mönnum mikilvæg og vonandi nær hann aftur að spila eins vel og í ár," sagði Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×