Handbolti

Danmörk byrjaði með sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ann Grete var drjúg í kvöld
Ann Grete var drjúg í kvöld vísir/afp
Danmörk lagði Úkraínu 32-23 í fyrsta leik þjóðanna á Evrópumeistaramóti kvenna í handbolta í Króatíu í kvöld.

Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn en Danmörk skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og var þremur mörkum yfir í hálfleik 14-11.

Danmörk hóf seinni hálfleik af krafti og skoraði 3 fyrstu mörkin og lagði þessi endir á fyrri hálfleik og byrjun á seinni hálfleik grunninn að sigrinum.

Danmörk jók forystuna jafnt og þétt allan seinni hálfleikinn eða allt þar til munaði níu mörkum í lokin.

Ann Grete Norgaard var markahæst hjá Danmörku með 8 mörk. Kristina Kirstiansen skoraði sex mörk og var jafnframt valin besti leikmaður Danmerkur.

Sandra Toft varði 13 skot í marki Danmerkur og Rikke Vestergaard Poulsen 1.

Viktoriya Borshchenko skoraði 7 mörk fyrir Úkraínu og var valinn besti maður liðsins. Olha Nikolayenko skoraði 6 mörk.

Viktoriya Tymoshenkova varði 11 skot í markinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×