Handbolti

Aron markahæstur í öruggum sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aron öflugur.
Aron öflugur.
Kiel vann öruggan níu marka sigur á Minden á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag 32-23. Kiel var 13-11 yfir í hálfleik.

Aron Pálmarsson er kominn á gott skrið með Kiel eftir meiðsli og var markahæstur með sex mörk eins og Domagoj Duvnjak og Joan Canellas. Steffen Weinhold skoraði 5 mörk.

Dalibor Dober skoraði 6 mörk fyrir Minden sem er í 16. sæti,fallsæti.

Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar er í öðru sæti á eftir Rhein-Neckar Löwen líkt á lakari markamun en bæði lið er með 30 stig í 17 leikjum, sjö stigum á undan Magdeburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×