Handbolti

Löwen skellti Veszprém í Þýskalandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alexander Petersson
Alexander Petersson vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen lagði ungverska stórliðið Veszprém í Þýskalandi í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld 32-25.

Löwen var mun betra liðið í kvöld og var 18-10 yfir í hálfleik.

Alexander Petersson var frábær í liðið Löwen og skoraði 7 mörk líkt og Patrick Groetzki og Andre Schmid. Uwe Gensheimer skoraði 5 mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt.

Momir Ilic og Laszlo Nagy skoruðu 5 mörk hvor fyrir ungverska liðið sem er þó sem fyrr á toppi riðilsins með 14 stig. Löwen er í þriðja sæti með 10 stig en bæði lið eru örugg í 16 liða úrslit keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×