Handbolti

Lübecke nælir sér í markvörð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skok mun verja mark Lübecke á næstu leiktíð.
Skok mun verja mark Lübecke á næstu leiktíð. heimasíða celje
Þýska handboltaliðið Tus N-Lübecke hefur samið slóvenska markvörðinn Matevz Skok.

Skok, sem er 28 ára, kemur til Lübecke næsta sumar frá RK Celje í heimalandinu.

Honum er ætlað að leysa Malte Semisch af hólmi, en hann mun ekki framlengja samning sinn við Lübecke sem situr í 13. sæti þýsku Bundesligunnar.

Skok hefur verið í herbúðum Celje frá árinu 2011, en hann lék áður með RK Gorenje Velenje. Markvörðurinn knái varð slóvenskur meistari með Gorenje 2009 og Celje 2014.

Skok hefur spilað 34 landsleiki fyrir Slóveníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×