Handbolti

Hlýtur að vera eitthvað lið heima sem hefur not fyrir mig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Landsliðsmaðurinn Þórir Ólafsson er samningslaus.
Landsliðsmaðurinn Þórir Ólafsson er samningslaus. Vísir/Daníel
„Það var algjörlega frábært að enda þetta svona. Ég gat ekki beðið um það mikið betra,“ segir Þórir Ólafsson en hann varð pólskur meistari um síðustu helgi og yfirgefur því félagið á besta mögulega hátt. Þetta var þriðja árið í röð sem félag Þóris, Kielce, verður pólskur meistari.

Framtíðin er aftur á móti í óvissu hjá hornamanninum snjalla. Hann er samningslaus og ef ekkert breytist þá er hann á leið heim.

„Það eru einhverjar smá þreifingar í gangi en ekkert sem hægt er að treysta á núna. Næstu fjórir dagar munu örugglega skera úr um það hvort ég fer eitthvert annað eða kem heim,“ segir Þórir.

Þórir á hús á Selfossi en ef hann ákveður að spila í Reykjavík þá ætlar hann að leigja húsið áfram.

„Þetta er leiðinleg óvissa sem ég er í en svona er þetta. Það er ekki alltaf á vísan að róa. Það er ekkert að því að koma heim og spila þar. Ég lít alls ekki neikvætt á það,“ segir hornamaðurinn sem er að klára sitt níunda ár í atvinnumennskunni.

„Strákarnir mínir eru spenntir að fara heim. Eldri strákurinn minn er að verða níu ára og vildi gjarna flytja heim. Helst vildi hann þó vera áfram hér enda líður honum vel hér og á góða vini,“ segir Þórir.

Fram undan eru landsliðsverkefni hjá Þóri en koma þarf landsliðinu á HM. Eftir það stefnir Þórir á að fara í samningaviðræður við félög hér heima ef ekkert annað kemur upp.

„Allt tekur enda og það hlýtur að vera eitthvert lið heima sem hefur not fyrir mig,“ segir Þórir hógvær en þó svo hann sé að verða 35 ára er hann enn að spila frábærlega og á nóg inni.

Þórir verður með íslenska landsliðinu sem mætir Bosníu í tveimur leikjum í umspili um sæti á HM í Katar sem fram fer í janúar á næsta ári. Fyrri leikurinn fer fram í Sarajevó laugardaginn 7. júní og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×