Handbolti

Mikkel Hansen með 11 mörk úr 11 skotum í sigri PSG í kvöld | Ásgeir Örn flottur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. Vísir/EPA
Róbert Gunnarsson og félagar í Paris Saint-Germain unnu risasigur á Istres HB í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ásgeir Örn Hallgrímsson átti mjög flottan leik.

Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir PSG sem vann 41-20 sigur á Istres en Róbert skoraði þessi fjögur mörk úr sex skotum. Danski landsliðsmaðurinn Mikkel Hansen nýtti öll ellefu skotin sín í leiknum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson átti fínan leik þegar Nimes vann sex marka útisigur á  Tremblay. Ásgeir Örn skoraði sjö mörk úr tólf skotum og var næstmarkahæstur í liði Nimes. Nimes-liðið er farið að bíta frá sér eftir erfiða byrjun.

Arnór Atlason klikkaði á öllum þremur skotum sínum þegar lið hans Saint Raphael tapaði 32-29 á útivelli á móti toppliðui Montpellier. Dragan Gajic, markakóngur HM í Katar, var markahæstur hjá Montpellier með átta mörk.

Snorri Steinn Guðjónsson gat ekki leikið með Sélestat vegna meiðsla og liðið tapaði 30-24 á útivelli á móti Chambéry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×