Handbolti

Aron með þrjú mörk er Kiel vann fjórða leikinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skilaði þremur mörkum í stórsigri Kiel á Bietigheim í dag.
Aron skilaði þremur mörkum í stórsigri Kiel á Bietigheim í dag. vísir/getty
Kiel átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Bietigheim að velli í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Lokatölur 40-27, þýsku meisturunum í vil, en þetta var fjórði sigur Kiel í röð.

Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel en hann er að komast aftur á ferðina eftir meiðsli.

Domagoj Duvnjak og Steffen Weinhold voru markahæstir í liði með sjö mörk hvor. Marko Vujin kom næstur með sex mörk en alls komust 10 leikmenn Kiel á blað í dag.

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans verma toppsætið í þýsku deildinni með 40 stig. Rhein-Neckar Löwen kemur er með 38 stig í 2. sæti en Ljónin eiga leik inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×