Handbolti

Auðvelt hjá Barcelona í toppslagnum á Spáni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn skoraði þrjú marka Barcelona í dag.
Landsliðsfyrirliðinn skoraði þrjú marka Barcelona í dag. mynd/barcelona
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Naturhouse La Rioja í toppslag í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur 38-28, Börsungum í vil.

Barcelona var sex mörkum yfir í hálfleik, 19-13, og bætti svo jafnt og þétt við forskotið í seinni hálfleik.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona úr fimm skotum. Kiril Lazarov var markahæstur í liði Spánarmeistaranna með átta mörk en Nikola Karabatic kom næstur með sjö.

Barcelona er ósigrað í vetur og situr á toppi spænsku deildarinnar með fullt hús stiga, eða 48 talsins. Tíu stigum munar á Börsungum og La Rioja sem er í 2. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×