Fótbolti

Ekkert gengur hjá lærisveinum Magna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magni Fannberg með lærisveinum sínum.
Magni Fannberg með lærisveinum sínum. Mynd/Heimasíða Brommapojkarna
Magni Fannberg, þjálfari Brommapojkarna, þurfti að horfa upp á enn eitt tapið hjá sínum mönnum í kvöld.

Brommapojkarna tapaði þá 2-0 á heimavelli á móti Degerfors í sænsku b-deildinni og hefur þar með aðeins náð í eitt stig af átján mögulegum í fyrstu sex umferðum tímabilsins.

Brommapojkarna er nú í næstneðsta sæti deildarinnar en tvö neðstu liðin fara beint niður. Brommapojkarna hefur tapað þremur síðustu leikjum sínum.

Liðið náði stigi sínu í 1-1 jafntefli á móti AFC United, sem er í áttunda sæti deildarinnar.

Magni Fannberg er á sínu fyrst ári sem aðalþjálfari Brommapojkarna en hann þjálfaði áður yngri flokka félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×