Fótbolti

Norrköping í þriðja sætið með sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór í leik með Norrköping.
Arnór í leik með Norrköping. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason og samherjar hans í IFK Norrköping halda áfram að ná í stig í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Arnór og félagar unnu 2-0 sigur á Falkenbergs FF í dag.

Arnór Ingvi var á sínum stað í byrjunarliði Norrköping sem skaust upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri, en Arnór spilaði allan leikinn.

Nikola Tkalcic og Emir Kujovic skoruðu mörkin, en liðið er nú með jafn mörg stig og Elfsborg í öðru sætinu og fimm stigum á eftir Gautaborg sem er á toppnum.

FH-banarnir í Elfsborg unnu 5-1 sigur á Gefle og Malmö og Djurgården sklidu jöfn 1-1 í sjötta og síðasta leik dagsins í sænsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×