Körfubolti

Lawson á förum eftir meðferð

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ty Lawson í leik gegn Los Angeles Lakers í vor.
Ty Lawson í leik gegn Los Angeles Lakers í vor. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum ESPN komust Houston Rockets og Denver Nuggets að samkomulagi í gær um leikmannaskipti sem innihéldu meðal annars vandræðagemsann Ty Lawson.

Lawson var á dögunum stöðvaður í annað skiptið á árinu við að aka undir áhrifum áfengis og var honum skipað að skrá sig í meðferð.

Houston Rockets þurfti að láta af hendi leikmenn af varamannabekk sínum ásamt vali í nýliðavalinu á næsta ári fyrir Lawson sem ætlað er að létta álagið af James Harden, stjörnubakverði liðsins.

Auk þess fær Denver leikmennina Kostas Papanikolaou, Pablo Prigioni, Joey Dorsey og Nick Johnson en Houston fær ásamt Lawson annað valrétt Denver í nýliðvalinu árið 2017.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×